Sumarnámskeið í Fab Lab smiðjunni
- Valdís Fjölnisdóttir

- 17 hours ago
- 1 min read
Það hefur heldur betur verið líf og fjör í Fab Lab Smiðju Vesturlands síðustu vikur! 🙌
Sumarið hefur verið viðburðaríkt og fjölbreytt. Haldin hafa verið skemmtileg sumarnámskeið fyrir krakka, auk þess sem við fengum góða heimsókn frá fulltrúum tveggja Fab Lab smiðja í Slóvakíu.
Þá voru einnig haldin tvö örnámskeið fyrir 8. bekkinga í smiðjunni, í boði Akraneskaupstaðar og sem hluti af Farsælu frístundastarfi sveitarfélagsins.
Það er alltaf jafn gaman að sjá smiðjuna iða af lífi, sköpunarkrafti og nýjum hugmyndum!





Comments