top of page

ÞRÓUNARSVÆÐIÐ

Breið þróunarfélag var stofnað árið 2020 af Brimi hf. og Akraneskaupstað,
Meginmarkmið félagsins er að efla atvinnulíf og nýsköpun á Akranesi sem og að þróa svæðið á Breið þar sem mun reisa blönduð byggð.

​

Svæðið sem Breið tekur til er vestasti hluti bæjarins. Það er í nálægð við höfn og miðbæ og býður upp á tækifæri til metnaðarfullrar þróunar sem gæti orðið einstök á landsvísu. Nýsköpun, stafræn þróun og sjálfbærni leggur grunn að einstöku og leiðandi skipulagi inn í nýja tíma og krefjandi áskoranir. Svæðið hefur alla burði til að verða eftirsóknarvert til búsetu sem og suðupottur fyrir skapandi starfsemi og frumkvöðla í einstakri náttúru og hafnartengdu bæjarumhverfi.

Breiðin

HUGMYNDASAMKEPPNIN

Lifandi samfélag við sjó, mynd1.webp

Hugmyndsamkeppni 2022

Sumarið 2022 var haldin alþjóðleg hugmyndasamkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Markmið samkeppninnar var að fá fagaðila til að leggja fram tillögur í samræmi við þá framtíðarsýn að á svæðinu verði íbúðabyggð fyrir ólíka aldurshópa í bland við atvinnusköpun með áherslu á hátækni, nýsköpun og sjálfbærni.

 

Tuttugu og fjórir þátttakendur frá ýmsum þjóðum tóku þátt. 

En hér má sjá allar tillögurnar: https://www.honnunarmidstod.is/ha-frettir/lifandi-samfelag-vi%C3%B0-sjo-hlytur-fyrstu-verdlaun-i-hugmyndasamkeppni


Sigurvegari keppninnar var glæsileg tillaga arkitektastofunnar NORDIC í samstarfi við Eflu hf. sem má sjá hér til hliðar. 

bottom of page