top of page

Hádegistónleikaröð hefst á Breið

  • Writer: Valdís Fjölnisdóttir
    Valdís Fjölnisdóttir
  • Apr 16
  • 1 min read

Hádegistónleikaröð menningarfélagsins Bohéme hófst með glæsibrag í síðustu viku á Breið þegar söngkonan Halla Jónsdóttir kom fram ásamt Heiðmari Eyjólfssyni.


Halla er fædd og uppalin á Akranesi þar sem tónlist hefur ávallt skipað stóran sess í lífi hennar bæði innan heimilis og utan. Á tónleikunum flutti hún falleg lög, bæði eftir sjálfa sig og aðra höfunda og var flutningnum afar vel tekið af góðum hópi gesta sem mætti í hádeginu. Halla vinnur nú að útgáfu sinnar fyrstu plötu sem væntanleg er í haust.



 
 
 

Comments


bottom of page