Opnun SKÚRSINS

Dec 5, 2025
1 min read
Mikill fjöldi mætti í opnun Skúrsins í Breið nýsköpunarsetri og ljóst er að mikil eftirvænting ríkir fyrir framhaldinu hjá strákunum í Skúrnum. Skúrinn verður til húsa í Fab Lab smiðjunni og sérlega ánægjulegt er að sjá hvernig ólíkar kynslóðir vinna þar nú saman að ýmsum verkefnum.
Opinn tími fyrir alla karlmenn 18 ára og eldri verður alla þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13:00–16:00.
Við hvetjum alla áhugasama til að koma í heimsókn og kynna sér starfsemina.





Comments