top of page

Kynning á japönskum jarðaberjum

Writer: Valdís Fjölnisdóttir
Valdís Fjölnisdóttir
Apr 10
1 min read

Frábær og fróðleg kynning á japönskum jarðarberjum fór fram á Breið í gær þar sem framleiðendur frá Japan deildu með okkur sögu og menningu sem liggur að baki þessum einstöku berjum. Jarðarberin eru ræktuð af mikilli alúð úr fræjum í Græna iðngarðinum á Reykjanesi og eru hreinlega ómótstæðileg.


Vegna mikillar eftirspurnar munu þau snúa aftur, enn sætari og safaríkari en áður og verða þá einnig fáanleg til sölu ásamt jarðarberjasultunni sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.


 
 
 

Comments


bottom of page