SKRIFSTOFUR OG SAMVINNURÝMI
Breið þróunarfélag býður fyrirtækjum og einstaklingum upp á skrifstofur og samvinnurými innan um önnur frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki.
Skrifstofur fyrir einstaklinga eða fyrirtæki fyrir allt að sex manns sem henta öllum þeim sem vilja lifandi umhverfi og góða aðstöðu. Aðgengi að glæsilegum fundarherbergjum, eldhúsi og kaffiaðstöðu í fylgir með.
Í notalegu samvinnurými okkar er hægt að leigja fast borð eða fljótandi aðstöðu allt eftir hentulegleika. Aðstaða að góðum fundarherbergjum, eldhúsi og kaffiaðstöðu fylgir með í lifandi og skemmtilegu umhverfi.
Viltu vita meira? Sendu okkur línu.

FÓLKIÐ Á SKRIFSTOFUNNI

Akranes Coastline
Sturlaugur og Andri Geir
Þeir Sturlaugur Haraldsson og Andri Geir Alexandersson eru hjá Akranes Coastline, fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á sjávarafurðum á erlenda markaði.

Breið þróunarfélag
Valdís og Gísli
Starfa fyrir Breið þróunarfélag og eru með aðsetur í samvinnurýminu

COWI
Alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki
Alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki á sviði verfræði, hönnunar og arkitektúrs.

Capretto ehf.
Íslenskt líftæknifyrirtæki
Er íslenskt líftæknifyrirtæki (e. biotech) sem byggir á rannsóknum frá Háskóla Íslands og sérhæfir sig í þróun lækningatækja.

Efla hf.
Þekkingarfyrirtæki
Efla er þekkingarfyrirtæki sem veitir fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði, tækni og tengdra greina. Efla er með ellefu starfsstöðvar á landinu og er sú í Breið nýsköpunarsetri ein af þeim.

GM Hönnun ehf.
Guðlaugur Magnússon
Starfar hjá Kvikmyndasafni Íslands og er með aðsetur í samvinnurýminu á Breið.

Glerfell ehf.
Reynir Georgsson
Aðstoðar verktaka og einstaklinga við það flesta er snýr að byggingarframkvæmdum.

Grammatek ehf.
Anna og Daniel
Grammatek sérhæfir sig í rannsóknum og þróun á sviði máltækni með áherslu á talgervingu. Grammatek er einnig virkur þátttakandi í Samstarfi um íslenska máltækni (SÍM) og sinnir þar verkefnisstjórn og fjölbreyttum þróunarverkefnum. Sjá nánar: www.grammatek.com

Helena Guttormsdóttir
Landbúnaðarháskólinn
Er lektor í landslagsarkitektúr og ráðgjafi Breiðar þróunarfélags

Hlédís Sveinsdóttir
Eigið fé ehf.
Sjálfstætt starfandi verkefnastjóri og fjölmiðlakona. Hefur fengist við stefnumótun fyrir ráðuneyti, verkefna- og viðburðastjórnun fyrir eigið fyrirtæki sem og opinber samtök, fjölmiðlun og dagskrárgerð fyrir N4 og RÚV. Hlédís hefur staðið fyrir ýmsum viðburðum um allt land s.s. matarmarkaði Íslands í Hörpu, Skaginn syngur inn jólin, Heima-Skagi, Jólagleði í Garðalundi svo fátt eitt sé nefnt. Hlédís er með aðsetur í samvinnurýminu á Breið.

KPMG
Ráðgjöf og endurskoðun
KPMG er endurskoðenda-, bókhalds-, og ráðgjafarfyrirtæki með starfsstöð í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi. Hjá KPMG á Akranesi starfar fjöldi einstaklinga við ólík viðfangsefni.

Karl Hrannar Sigurðsson
Sekretum ehf.
Er lögfræðingur og starfar hjá Sekretum sem einbeitir sér að málum tengdum persónurétti.

Lind fasteignasala
Bogi Molby Pétursson
Fasteignasalan Lind er með útibú í Breið nýsköpunarsetri þar sem Bogi Molby fasteignasali fer fremstur í flokki.

Prime Consult ehf.
Anna Einarsdóttir
Prime Consult sérhæfir sig í byggingarstjórn og ráðgjöf

Reynir Georgsson
Skýváfnir og CCP
Jón Orri Kristjánsson er sjálfstætt starfandi forritari sem starfað hefur fyrir Skývafni og CCP.

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
SSV
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) eru landshlutasamtök allra sveitarfélaganna á Vesturlandi og vinna þau að ýmsum sameiginlegum hagsmunamálum landshlutans. Ráðgjafar og verkefnastjórar samtakanna eru með viðveru víðsvegar um landshlutann. Starfsemi SSV skiptist upp í þrjú svið og eru öll sviðin með ráðgjafa í fastri viðveru í hverri viku á Breið.

Sigrún Hauksdóttir
Capretto ehf.
Starfar hjá lyfja- og nýsköpunarfyrirtækinu Capretto ehf.
