top of page

RESEARCH AND DEVELOPMENT

Are you an entrepreneur and need space to test your ideas further in first-class conditions for research and development in life sciences? Then Breið is the innovation center.

 

We offer an elegant space where you can rent the space that suits your research. Access to a freezer, meeting rooms, kitchen, coffee facilities, and standing desks is included. 

​

Want to know more? Contact us here

IMG_8881.MOV.jpg

COMPANIES IN RESEARCH AND DEVELOPMENT

not used

Algó ehf.

Þararannsóknir og sæmeti

Sérþekking Algó felst fyrst og fremst í öflun og nýtingu á þara og þörungum. ALGÓ vinnur að haftengdri nýsköpun og uppbyggingu strandyrkju á Skipaskaga og á Vesturlandi.
Auk þess vinnur ALGÓ að þróun matvæla úr sjávarþörungum, bragðgóðri fæðubót undir vöruheitinu sæmeti.
Framtíðarmarkmið ALGÓ er ræktun sjávarþörunga með blandaðri land- og hafrækt.

not used

Breið líftæknismiðja

Rannsóknir og þróun á uppskalanlegum hugmyndum

Mikilvægt er að geta tekið grunnrannsóknir yfir á hagnýtingastig en yfirleitt er það dýrt og tímafrekt ferli.
Með tilkomu líftæknismiðju geta allir, sem þess óska, fengið aðgang að smiðjunni í ákveðinn tíma til þess að þróa hugmyndir sínar áfram við góðar aðstæður og nauðsynlegum tækjabúnaði.

not used

Emilía útgerð ehf.

Vinnueftirlit ríkisins

Hlutverk Vinnueftirlitsins er að vera miðstöð vinnuverndarstarfs í landinu. Starfsstöð Vinnueftirlitsins á Breið er ein af níu starfstöðvum þeirra á landinu.

not used

Fab Lab smiðja Vesturlands

Stafræn smiðja

Fab Lab (Fabrication Laboratory) er stafræn smiðja með tækjum til að búa til nánast hvað sem er. Smiðjan gefur einstaklingum og fyrirtækjum tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og láta hugmyndir verða að veruleika.
Fab Lab er opið öllum aldurshópum frá leikskólaaldri til eldri borgara og eru opnir tímar í boði fyrir áhugasama.

not used

Lokinhamrar ehf.

Grjótkrabbarannsóknir og vinnsla

Útgerðarfélagið Lokinhamrar rannsakar og þróar vinnslu á grjótkrabba.
Lokinhamrar reka 12 tonna bát sem þeir nýta við veiðar og rannsóknarvinnu sína á grjótkrabba við strendur Akraness.

not used

Marvakt ehf.

Eva Dögg Jóhannesdóttir

Umhverfisvöktun og ráðgjöf

not used

North Marine Ingredients

Ensímavinnsla og beinamjöl

Feðgarnir Þórður og Bergur Benediktsson eru eigendur North Marine Ingredients en félagið vinnur prótín, ensím og bragðefni úr sjávarafurðum og framleiða m.a. beinamjöl sem fæðubót. Markmið og meginstefna félagsins er að koma rannsóknum yfir á uppskölunarstig.

not used

Röst sjávarrannsóknarsetur

Óhagnaðardrifið rannsóknarfyrirtæki

Röst sjávarrannsóknarsetur er undir Carbon to Sea Initiative sem leiðir metnaðarfulla alþjóðlega rannsóknaráætlun sem ætlað er að kanna hvort aukning á basavirkni sjávar (e. Ocean Alkalinity Enhancement, OAE) sé skilvirk, örugg og varanleg leið til þess að fjarlægja CO2 úr andrúmsloftinu.

not used

Sara Björk Hauksdóttir

Listakona

Í list sinni hefur Sara unnið mikið með náttúruna og hefur það kveikt áhuga hennar á litarefnum og öðru hráefni úr íslenskri náttúru þá einna helst gróðri og sjávarfangi.
Sara Björk Hauksdóttir útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2022. Hún hefur jafnframt lokið námi í listmálun við Idun Lovén í Stokkhólmi.

not used

Sedna biopack ehf.

Matvalapakkningar úr þörungum

Þróar náttúrulegar matvælapakkningar úr efnum brúnþörunga, í stað plasts, og hefur í samvinnu við Efnasmiðjuna gert frumgerðir að lífbrjótanlegum öskjum úr efnablöndu islenskrar Alaskalúpinu og þara m.a. fyrir grænmetisumbúðir. 

bottom of page