Líftæknismiðja á Breið
Það var ánægjuleg stund þegar þrettán aðilar skrifuðu undir viljayfirlýsingu um stofnun líftæknismiðju í Breið nýsköpunarsetri.
Aðilar að viljayfirlýsingunni lýsa yfir vilja sínum til að eiga samstarf um og að styðja við að í Breið nýsköpunarsetri verði stofnuð líftæknismiðja. Markmið með uppbyggingu líftæknismiðju er að skapa samvinnurými þar sem frumkvöðlar, stofnanir og fyrirtæki, sem stunda rannsóknir úr lífmassa, geti haft aðstöðu til rannsókna og þróunar á uppskölunaraðferðum.
Mikilvægt er að geta tekið grunnrannsóknir yfir á hagnýtingarstig. Svo slíkt sé hægt þarf oft að prófa aðferðir með dýrum og plássfrekum tækjum sem þurfa sérhæfða aðstöðu. Þetta er mörgum, sem stunda grunnrannsóknir, ofviða þar sem þeir hafa hvorki aðstöðu né fjármagn til að halda rannsóknum áfram.
Með tilkomu líftæknismiðju geta allir, sem þess óska, fengið aðgang að samvinnurýminu til lengri eða styttri tíma til þess að þróa hugmyndir sína áfram við góðar aðstæður og með nauðsynlegum tækjabúnaði.
Þeir aðilar sem skrifuðu undir viljayfirlýsinguna eru:
Akraborg ehf. Algó ehf.
Breið þróunarfélag ses. Brim hf. Efnagreining ehf. Háskóli Íslands Landbúnaðarháskóli Íslands Lokinhamrar ehf. Norðanfiskur ehf. Norður ehf. Orkídea ses. Sedna biopack ehf. Vignir G. Jónsson hf.
