top of page

Líftæknismiðja


Mikilvægt er að geta tekið grunnrannsóknir yfir á hagnýtingarstig. Svo slíkt sé hægt þarf oft að prófa aðferðir með dýrum og plássfrekum tækjum sem þurfa sérhæfða aðstöðu. Þetta er mörgum, sem stunda grunnrannsóknir, ofviða þar sem þeir hafa hvorki aðstöðu né fjármagn til að halda rannsóknum áfram.

Með tilkomu líftæknismiðju geta allir, sem þess óska, fengið aðgang að samvinnurýminu til lengri eða styttri tíma til þess að þróa hugmyndir sína áfram við góðar aðstæður og með nauðsynlegum tækjabúnaði.


Kvik og aðlaðandi aðstaða fyrir frumkvöðla á sviði líftækni

  • Byggð verður upp líftæknismiðja, aðstaða sem býður upp á lifandi starfsemi í rými sem er sérútbúið fyrir það rannsóknar- og þróunarstarf sem færi fram í rýminu á sviði lífmassa.

  • Aðgengi að grunntækjum verður til staðar og aðstaða fyrir sérhæfð tæki verður til staðar á ákveðnum tímum.


Rannsóknir á lífmassa og tengdum verkefnum

  • Sköpun nýrrar þekkingar og hagnýting hennar er lykill að lífsgæðum og auðugu mannlífi til framtíðar. Áhersla á rannsóknir á hafinu og nýsköpun hefur aldrei verið mikilvægari.

  • Miklar umhverfisbreytingar eiga sér stað í heiminum í dag og er áríðandi að efla grunnrannsóknir til að ná rannsóknum yfir á hagnýtingarstig. Líftæknissmiðjan á Breið mun auka möguleika frumkvöðla í þeirri vegferð.


Eftirfarandi aðilar hafa lýst yfir stuðningi og/eða samstarfi um líftæknismiðju á Breið:

Akraborg ehf.

Algó ehf.

Breið þróunarfélag ses.

Brim hf.

Efnagreining ehf.

Háskóli Íslands

Landbúnaðarháskóli Íslands

Lokinhamrar ehf.

Norðanfiskur ehf.

Norður ehf.

Orkídea ses.

Sedna biopack ehf.

Vignir G. Jónsson hf.



115 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page