Gull á grunnsævi - Þörungaráðstefna á Breið

4 days ago
1 min read
Fjölmennt var á þörungaráðstefnunni Gull á grunnsævi, sem haldin var í Breið nýsköpunarsetri í síðustu viku.
Á ráðstefnunni fluttu fjölbreyttir aðilar erindi um tækifæri stórþörunga á Íslandi og jafnframt voru kynningarbásar þar sem ýmis spennandi verkefni og tækifæri tengd greininni voru kynnt.
Stærstu tíðindi ráðstefnunnar voru þó þegar Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, boðaði að á næstu vikum verði lagt fram á Alþingi nýtt frumvarp um stórþörungarækt í sjó.




Comments