Fjöliðjan
Updated: Nov 8, 2021
Fjöliðjan
Fjöliðjan er vinnustaður þar sem boðið er upp á verndaða vinnu og endurhæfingu fyrir þá sem þess þurfa og leita eftir þjónustu. Í Fjöliðjunni á Akranesi fer fram fjölbreytt vinna og starfsfólkið tekst á við mörg ólík verkefni. Húsinu er skipt í tvo hluta annars vegar vinnustöð þar sem framleiðsla og vinnsla fer fram auk atvinnu með stuðning og hins vegar Hæfing, þar sem einstaklingar með mikla fötlun fá einstaklingabundna leiðsögn. Fjöliðjan er staðsett á Dalbraut 10 og er hún opin alla virka daga frá kl. 8:00-11:45 og frá kl: 13:00-15:30.
Fjöliðjan tekur að sér ýmis pökkunar verkefni. Upplýsingar gefa Guðmundur Páll forstöðumaður á netfangið gudmundur.pall.jonsson@akraneskaupstadur.is og Árni Jón Harðarson verk- og deildarstjóri á netfangið arni.jon.hardarson@akraneskaupstadur.is eða í síma 433 1722.
Markmið Fjöliðjunnar er að starfrækja verndaðan vinnustað á grundvelli laga um málefni fatlaðra:
Veita þeim sem ekki eiga kost á almennum vinnumarkaði atvinnu við sitt hæfi
Veita fötluðum þjálfun og endurhæfingu til að starfa á almennum vinnumarkaði
Veita starfsþjálfun sem eykur möguleika til blöndunar í samfélagi ófatlaðra á gagnkvæmum forsendum
Bjóða upp á næg og fjölbreytt verkefni sem taka mið af þjálfunargildi
Líkja sem mest eftir algengum (væntanlegum) vinnuaðstæðum og kröfum á almennum vinnumarkaði
Veita öllum viðskiptavinum (þjónustuþegum) góða og sveigjanlega þjónustu er fellur að mismunandi þörfum og óskum þeirra
Starfsemi Fjöliðjunnar verði í sem mestum tengslum við atvinnulífið og að allar aðstæður og starfskjör líkist því sem almenn gerist
Einstaklingar með lögheimili á Akranesi geta sótt um starf hjá Fjöliðjunni. Nánari upplýsingar gefa Guðmundur Páll forstöðumaður á netfangið gudmundur.pall.jonsson@akraneskaupstadur.is og í síma 433 1720 eða Ásta Pála Harðardóttir yfirþroskaþjálfi á netfangið asta.hardardottir@akraneskaupstadur.is og í síma 433 1723. Eftir móttöku umsóknar fær umsækjandi viðtalstíma hjá forstöðumanni og/eða yfirþroskaþjálfa og eftir atvikum atvinnumálafulltrúa atvinnu með stuðning. Í framhaldi af því er umsóknin tekin fyrir á atvinnuteymisfundi sem afgreiðir umsóknina.

