top of page

Brim hf. og Akraneskaupstaður skrifa undir framhald á starfsemi Breiðar þróunarfélags

Updated: May 30

Brim hf. og Akraneskaupstaður hafa skrifað undir samning um framhald á starfsemi Breiðar þróunarfélags til loka árs 2026.

Brim og Akraneskaupstaður eru ánægð með árangur af samstarfinu um Breið þróunarfélag og semja um framhald. Skrifað hefur verið undir samning um framhald á starfsemi Breiðar þróunarfélags til næstu þriggja og hálfs ára eða til loka árs 2026.

Breið þróunarfélag var stofnað í júlí 2020 og eru aðilar sammála um að verulegur og jákvæður árangur hafi verið af samstarfinu frá stofnun þess. Þann árangur má m.a. sjá í uppbyggingu nýsköpunarseturs og nýjum störfum sem hafa skapast á Akranesi í ýmsum greinum en þó aðallega rannsóknum og þróun. Varðandi þróun Breiðarinnar liggja fyrir niðurstöður hugmyndasamkeppni og vinningstillaga sem aðilar eru sammála um að leggja til grundvallar framtíðaruppbyggingu á svæðinu.

Akraneskaupstaðar og Brim eru sammála um að næsti áfangi samstarfsins um Breið þróunarfélag skuli gilda frá undirritun samkomulags þessa til ársloka 2026. Eftirfarandi atriði eru sameiginleg markmið á árunum 2023 – 2026:

Áfram verði unnið að því að efla starfsemi Breiðar þróunarfélags sem vettvangs nýsköpunar og frumkvöðlastarfs þar sem áhersla verður m.a. lögð á rannsóknir og nýtingu auðlinda hafsins, aðgerðir gegn súrnun sjávar og aðgerðir í loftslagsmálum til að mæta markmiðum Íslands í loftslags- og umhverfismálum. Sameiginlega verði unnið að breytingum á aðalskipulagi Breiðarinnar og nýju deiliskipulagi á grundvelli vinningstillögunnar „Lifandi samfélag við sjó“ sem unnin var af arkitektastofunni Arkþing/Nordic og Eflu verkfræðistofu. Það er markmið aðila að skipulagsvinnu verkefnisins ljúki á árinu 2025.


49 views0 comments
bottom of page