Fab Lab smiðja Vesturlands tekur til starfa
Fréttir og áhugavert efni
Um Fab Lab smiðju Vesturlands
Fab Lab smiðja Vesturlands er staðsett í Nýsköpunarmiðstöðinni á Breið á Akranesi, húsnæði sem áður hýsti fiskvinnslu HB Granda (nú í eigu Brims) og er samtals um 4.700 m2 húsnæði.
Með rekstri á stafrænni smiðju Fab Lab smiðju Vesturland er stefnt að því að auka þekkingu og áhuga á verk- og tækninámi í grunn- og framhaldsskólum, auka almennt tæknilæsi, skapandi starf og frumkvöðlamennt. Markmið verkefnisins er enn fremur að skapa vettvang fyrir þróun og prófun hugmynda og efla þannig samkeppnishæfni í nærsamfélagi.
Fab Lab smiðja Vesturland er hluti samstarfsnets Fab Lab smiðja á Íslandi og tengist jafnframt alþjóðaneti Fab Lab smiðja, Fab Foundation við Massachusetts Institute of Technology (MIT). Fab Lab Ísland heldur utan um og leiðir samstarfsnet Fab Lab smiðja á Ísland. Þeim samstarfsvettvangi er ætlað að tryggja þekkingaryfirfærslu og faglega þróun starfsmanna.
Nánari upplýsingar veita forstöðumenn Fab lab smiðjunnar þau:
Ármann Vilhjálmsson, s. 849-2927 /armann.vilhjalms@gmail.com
Unnur Jónsdóttir, s. 868-5245 / unnur@jonsdottir.net
Umfang
-
Fab Lab er smiðja með tólum og tækjum þar sem hægt er að útbúa nánast hvað sem er. Fab Lab gefur ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, tækfæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með hjálp stafrænnar tækni.
-
Róttækar breytingar í samfélagi og atvinnulífi kalla á breytingar í menntun. Menntun og hæfni í verkgreinum, raungreinum og tæknigreinum eru mikilvæg undirstaða nýsköpunar.
-
Fab Lab er opinn vettvangur fyrir almenning, fyrirtæki, frumkvöðla og nemendur þar sem þeir geta komið og raungert hugmyndir sínar með tækjum og tólum sem í boði eru í smiðjunum.
-
Samkeppnishæfi Íslands byggir á möguleikum til nýsköpunar í krafti þekkingar og hæfni og er Fab Lab frábær vettvangur til að ná þeim markmiðum og til að hvetja til tækni og raungreinamenntaðra einstaklinga.
Samstarfsaðilar um Fab Lab smiðju Vesturlands
Fab Lab er smiðja með tækjabúnaði til alls kyns framleiðslu, sem gefur ungum sem öldruðum einstaklingum auk fyrirtækja tækifæri til að þjálfa sköpunargáfu og hrinda hugmyndum í framkvæmd með því að móta, hanna og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni.
Samstarfsaðilar sem koma eru þátttakendur að Fab Lab smiðju Vesturlands eru eftirfarandi aðilar:
-
Akraneskaupstaður
-
ArtTré ehf.
-
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
-
Breið þróunarfélag
-
Brekkubæjarskóli
-
Brim hf., kt. 541185-0389
-
ELKEM Ísland ehf.
-
Félag eldri borgara Akranesi
-
Fjölbrautaskóli Vesturlands
-
Fjöliðjan
-
Grundaskóli
-
Icewind ehf.
-
Landssamtök Karla í skúrum
-
Leikskólinn Akrasel
-
Leikskólinn Garðasel
-
Leikskólinn Teigasel
-
Leikskólinn Vallarsel
-
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
-
Muninn Film ehf.
-
Norðurál ehf.
-
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)
-
Skaginn 3X / BAADER
-
Símenntunarmiðstöð Vesturlands
-
Starfsendurhæfing Vesturlands
Búnaður í Fab Lab smiðju:
Sá tækjabúnaður sem Fab Lab Vesturlands verður með á árinu 2021 má sjá hér að neðan. Það er markmið starfseminnar að auka
þann tækj aukaþann tækjakost og bjóða þannig upp á fjölbreyttari möguleika og starfsemi.
Tækjabúnaður:
-
Laserskurðarvélar – stór og lítil
-
Fræsivélar – stór og lítill
-
Fínfræsivélar
-
Vínylskeri
-
VinylskeriRolandGX-24 Vinilskeri er einskonar plotter, tölvustýrður hnífur sem getur skorið í filmur. Stundum er vinylskera líkt við prentara nema í stað þess að sprauta bleki þá er hníf stungið niður og allt sem hægt er að gera með dúkahníf í filmur er hægt að gera í vinylskera bara á mun nákvæmari hátt. Vinylskerinn er af sumum talin vanmetnasta tækið í Fab Lab smiðjunni en hann má nota á fjölbreyttan hátt til dæmis: ● Til að skera út límmmiða ● Skera út textílfilmur ● Skera út sveigjanlegar rafrásir ● Gera mynstur í yfirborð ● Skera út filmur fyrir silkiprentu
-
Þrívíddarprentarar
-
Tölvur
-
Pólyhúðunurbekkur (bakaraofn og sprautuklefi)
Hugbúnaður:
-
Fjarfundarbúnaður
-
Fusion þrívíddarvinnsla
-
Ýmis tölvuforrit s.s.
-
Inkspace / Blender/ Gimp / Sketchup/ Tinkercad o.fl.
Annar búnaður:
-
Saumavélar
-
Metal engraving
-
Fatapressa
